03desember

Nei hvur asskoti, er hann enntha a lifi?

Goda Kvoldid!!!!!

Heyridi, haldid ad eg hafi ekki verid ad kveikja a islenska simanum ad gamni i fyrsta skipti sidan eg kom hingad ut og tha rakst eg a bloggar.is lykilordid mitt og akvad ad blogga sona til tilbreytingar. Thad hefur nattla ohemju mikid gerst sidan ad eg bloggadi sidast! Madur er ordinn fullgildur Floridabui sem er byrjad ad vera kalt thegar hitinn fer nidur fyrir 20 gradur...eg veit ekki hvernig eg a eftir ad vera thegar eg kem heim. Talandi um ad koma heim tha er eg ad koma heim eftir 13 daga! Mig er farid ad hlakka mikid til ad komast heim og sja alla aftur, thott ad thad se buid ad vera mjog gaman herna ad sjalfsogdu, tha er kominn sma Islandssoknudur i mann. En kannski ad madur aetti ad fara adeins yfir thad sem hefur gerst sidustu manudi.

Eg by semsagt i Saint Augusitine Florida sem er elsti baer i Bandarikjunum og thetta er alveg frabaer stadur. Mjog mikill turistastadur sem thydir ad um helgar er alveg trodid i midbaenum. Eg by med 2 krokkum ur skolanum annarsvegar med strak fra New Jersey sem er ekki sa skemmtilegasti(thrifur aldrei og spilar tonlist langt framma nott)en hann er ad flytja ut eftir 2 vikur thannig ad madur er nokkud sattur. Svo by eg med stelpu fra Sviss sem heitir Roxane en hun er mjog fin, er i tennislidinu i skolanum en hun fotbrotnadi i gaer greyid og verdur fra i 6 vikur. Vid buum i mjog skemmtilegri ibud a tveimur haedum, med alveg risastora stofu og sundlaug. Sidan hinum megin vid gotuna er besti veitingastadur i Bandarikjunum Gypsy Cab en thangad fer madur osjaldan og faer ser Baked Ziti sem er hrikalega gott pasta.

Skolinn er mjog skemmtilegur og flottur. Thad er ekki hvada skoli sem er sem er med turistaferdir a hverjum sokum thess ad skolinn er svo flottur og sogufraegur. Eg er einsog adur sagdi ad laera stjornmalafraedi sem er mjog fint en lika frekar erfitt. Fotboltinn hja mer var nu ekki mikill i ar med skolalidinu thar sem eg og einn annar strakur i lidinu urdum aldrei loglegir og svo ofana allt annad tha tognadi eg aftani laeri tvisvar sinnum og eg er buinn ad vera ad jafna mig a tvi sidustu 6 vikurnar sem thydidi ad eg er buinn ad vera meira og minna hja sjukrathjalfara ad vinna i tvi. Mjog pirrandi. En nuna ma eg byrja ad hlaupa aftur sem er mjog gott, var halfpartinn ad klofna a thessu.

Annars vildi eg bara lata vita af mer. Kem med betri faerslu naest um thad markverda sem hefur gerst herna uti. Hlakka til ad sja alla thegar eg kem heim.


kv.Sebastian
03. desember 2007 klukkan 07:32
Sebastian Storgaard
Engin athugasemd
28ágúst

Flórída!

Jæja eftir frekar slappa blogg frammistöðu síðast þá hef ég ákveðið að prófa aftur. Það er svona aðallega gert því að þónokkrir hafa sagt mér að byrja að skrifa sökum þess að ég er að fara í skóla í Bandaríkjunum einsog flestir sem þekkja mig vissu nú þegar. Stefnan er tekin á Flagler College í St.Augustine í Flórída. Þetta er víst mjög vinarlegur bær með mikla sögu en þetta er víst elsta byggð í Bandaríkjunum og það er víst hellingur af minjum og gömlum húsum sem hægt er að skoða. Ég flýg út núna á næsta föstudag sem verður mjög spennandi en einnig erfitt því að það er margt á Íslandi sem maður á eftir að sakna en ég vona bara að maður læri að meta það sem maður hefur hér ennþá betur á því að fara út. Námið sem ég er að fara í tekur 4 ár en ég er spá í að reyna að proffast sem mest svo ég geti klárað þetta fyrr. Ég er að fara á fótboltastyrk en maður er búinn að taka hanskana fram aftur í bili allaveganna og ætla ég að reyna að verja mark Flagler College eftir bestu getu. Það er nóg af spennandi leikjum framundan og það verður mikið að gera í boltanum sem er ekkert nema gott. Ennþá eru þó nokkrir lausir endar. Ég er ekki kominn með leikheimild ennþá en NCAA sem er íþróttasamband háskólanna úti er tregara en tregapi í hjólbörum að klára þetta dæmi en Coach hefur sagt mér að þetta ætti að taka engan tíma, vona bara að ég nái leiknum 4.september á heimaveli á móti Embry Riddle skólanum sem er víst algjör "nágrannaslagur". Svo þegar ég kem út vel ég mér íbúð, hef eitthvað heyrt um það að ég sé að fara að leigja kannski með tveimur þýskum strákum sem eru í liðinu. Verður gaman að fá það á hreint. Ingvar vinur minn er nú þegar búinn að staðfesta heimsókn á þessu ári og það verður gaman að fá kallinn og detta í einhverja vitleysu með honum. Annars eru allir velkomnir um leið og maður er búinn að koma sér fyrir. Verð duglegur að henda inn myndum og sögum frá því sem maður verður að bralla þarna úti. Annars ætla ég að enda þetta blogg á myndum frá staðnum sem ég er að fara til og bið ykkur vel að lifa, nær og fjær. Sé svo vonandi einhver ykkar í USA.






Þetta er skólinn minn en hann er með eitt af sjö flottustu campusum í Bandaríkjunum að sögn einhverra snjallra manna. Ekki ljót bygging.




28. ágúst 2007 klukkan 01:51
Sebastian Storgaard
4 athugasemdir
19september

Tölvur og börn

Ég er hérna í vinnunni með heilan 7 ára bekk hérna í tölvustofunni og eru krakkarnir í frjálsum tíma í tölvunum. Það hefur ekki heyrst hljóð frá þeim síðan þau komu hingað inn. Þetta er algjör snilld en á sama tíma soldið sorglegt að það þarf skjá til að fá börnin til að hegða sér. Einnig vil ég að segja að hljóðið sem er að koma úr Barbie leiknum hérna við hliðina á mér er að gera mig bilaðan....myndi það drepa einhvern að hætta þessu carnival loopi í SMÁSTUND!!!???!!!


over and out.

19. september 2006 klukkan 21:12
Sebastian Storgaard
Engin athugasemd
19september

Allt að gerast

Jæja góðan daginn!

Það er allt að gerast þessa daganna. Hans vinur minn er farinn af landi einsog svo margir fleiri en hann er farinn til Liverpool að læra hljóðupptökustjórn semog að vera mjög ötull stuðningsmaður Everton því að hann myndi aldrei styðja Liverpool.
Honum var haldið mjög gott kveðjupartý síðasta föstudag sem var mjög skemmtilegt og gaman að ná að kveðja kallinn almennilega. Ég byrjaði í nýrri vinnu í gær í Austurbæjarskóla á frístundaheimili sem ég verð að segja er bara mjög fínt. Þekki nokkur barnanna þarna síðan í sumar þegar ég var að vinna í Frostaskjóli þannig að þetta er bara allt hreint ágætt. Fínt starfsfólk líka. Síðan er maður að læra á fullu því að það er að styttast í 10.október þegar ég flýg til New York og þaðan til mekku Bandaríkjanna Greensboro en þar ætla ég að heimsækja bæði Jökul vin minn og skóla sem ég hef áhuga á að fara í en einnig ætla ég að taka inntökuprófin í skólann úti þar í Western Guilford High School. Það verður nú spennandi. Annars gengur lífið sinn vanagang og mig er virkilega farið að langa að komast út.
Annars ætla ég að fara að koma mér að verki.

Unitil next time.

Sebastian.

Ein smá getraun í lokin...

Hvaða tré er þetta?



+



+



??????
19. september 2006 klukkan 16:15
Sebastian Storgaard
2 athugasemdir
16september

Til hamingju Ísland!

Með bongóblíðuna sem er úti!
Ég ætla að fara að reyna að njóta hennar á eftir þegar ég er búinn að taka til eftir teitið sem var hérna í gær!


Kv.Sebastian


16. september 2006 klukkan 19:25
Sebastian Storgaard
Engin athugasemd
15september

United 93

Næsta færsla átti nú að vera skemmtileg færsla um stórgóða ferð okkar vinanna til London en ég ætla að láta hana bíða aðeins.
Í gærkvöldi skellti ég mér í bíó með Dóra á myndina United 93. Þetta var mynd sem ég hafði beðið mjög spenntur eftir og hún olli engum vonbrigðum. Myndin var frá upphafi til enda mjög góð og hélt manni stöðugt við efnið.
Hinsvegar held ég hin 11.september myndin World Trade Center eða hvað sem hún heitir með Nicolas Cage verði ekki eins góð....en það er aldrei að vita.
United 93 tekst fullkomlega að gera það sem henni er ætlað, það er að vekja mann til umhugsunar. Ekki einungis um atburðinn þegar 4 flugvélum var rænt með þeim tilgangi að fljúga þeim á mikilvægar byggingar í Bandaríkjunum og drepa þúsundir manna heldur einnig hvernig við horfum á lífið frá degi til dags. Allir vita hvar þeir voru og hvað þeir voru að gera þennan örlagaríka dag. Ég man að ég fór í kakódrykkjukeppni við Komma bekkjarbróður minn og fór eftir það veikur heim(ég fékk flensuna). Pabbi var veikur heima og var einsog heimsbyggðin límdur við kassann að horfa á fréttirnar. Maður horfði á sjónvarpið einsog maður horfir á bíómynd. Hvert atriðið á fætur öðru varð ótrúlega og ótrúlega og Hollywood hefði eflaust aldrei getað skrifað svona handrit. Í kjölfarið hófust atburðir sem við öll þekkjum með miklum átökum, þjóðfélagsárekstrum, hatri, hræðslu og týndum lífum. Við búum öll yfir fordómum gagnvart einhverju, því verður aldrei neitað. Hvað veldur fordómum getur engin verið sammála um en það eru mjög góð rök að vanþekking geti leitt til fordóma. Múslimar hafa oft á síðustu tímum fengið að súpa seyðið af miklum minnihluta sem telst til öfgakenndra bókstafstrúarmanna. Það væri jafnheimskulegt að hrópa fúkyrði að hverjum Bandaríkjamanninum sem maður sæji bara vegna þess að bandaríska ríkisstjórnin hefur fundið sig seka um mikil misstök í alþjóðamálum síðustu ár sem kostað hafa margan saklausan manninn lífið og að setja múslima alla undir sama hatt þessara manna sem nota trúarbrögð sín sem réttlætingu á þessum ódæðisverkum. Félagslegur aðskilnaður hefur sjaldan verið meiri en hann er núna og hægt er að kenna mörgu um en það er alveg ljóst að að fjölmiðlar spila stóra rullu í þessum málum. Fréttirnar sem við fáum frá sjónvarpsstöðvum hér á Vesturlöndum er oftast nær ekkert líkar þeim fréttum sem koma út um sömu atburðina frá fréttastöðvum í átakalöndunum. Hverjum á maður að trúa? Það er ekki mitt að dæma en það er víst að báðir aðilar hafa hagsmuna að gæta og því má segja að báðir aðilar geri sennilegast mest til þess að gæta sinna eigin hagsmuna. Fox sjónvarpsstöðin hefur verið í farabroddi í óhugnarlegri markaðsstefnu Bush ríkisstjórnarinnar. Fox stöðin má eiga það að hún tekur oft á málefnum innan Bandaríkjanna á harðskeyttari og betri hátt en margar aðrar sjónvarpsstöðvar en hinsvegar þessi stöð gegnsýrð af Repúblikanaáróðri þar sem að oft heyrast setningar sem segja að stærsta ógnin við Bandaríkin í dag séu ekki hryðjuverkamenn heldur Demókratar. Þetta er mjög óhugnarlegt að heyra. Í eins stóru og viðamiklu landi og Bandaríkjunum sem stendur frammi fyrir allskyns vandamálum og ekki bara hryðjuverkaógn þá er það furðulegt hversu lítil samstaða virðist vera í þessu landi. Landið virðist skiptast í tvennt og því verða allar ákvarðanatakanir erfiðari samanber 11.september, innrásirnar í Afganistan  og Írak og svo auðvitað flóðin í New Orleans. En núna er ég kannski byrjaður að tala aðeins út fyrir efnið.
Mikið hefur verið rætt um ýmsar samsæriskenningar í kringum 11.september og sumir ganga svo langt að segja að Bandaríkjamenn hafi skipulagt þessa árás sjálfir. Ég verð að vera ósammála þar. Hinsvegar held ég að ríkisstjórnin sé sek um það að hafa brugðist illa við bæði fyrir og eftir árásina. Það er almennt vitað að þeir hafi fengið upplýsingar einhverjum mánuðum fyrir árásina að hún myndi eiga sér stað og lítið var gert í þessum hlutum. Ég held einnig að mikið af sannleikanum bakvið 11.september hafi ekki komið fram einfaldlega vegna þess að ég held að þar séu staðreyndir sem myndu koma sér afar illa fyrir bandarísku ríkisstjórnina. Ég samþykki hinsvegar ekki að þeir hafi skipulagt þetta sjálfir en margt er enn óvitað eða ósagt.
Þetta er bara smábrot af þeim hugsunum sem fóru af stað eftir að ég sá þessa mynd. Ég kem með hressari færslu næst.

Lifið heil.

Kv.Sebastian
15. september 2006 klukkan 18:39
Sebastian Storgaard
Engin athugasemd
06september

England here I come!

jæja þá er maður að leggja af stað til enska landsins eftir nokkra tíma og ég bið ykkur vel að lifa á meðan.
hafið það gott!
ég kem heim aftur með eiturhressa ferðasögu!


kv.Sebastian
06. september 2006 klukkan 15:15
Sebastian Storgaard
1 athugasemd
03september

Engan jazz hér!

Já það er laugardagskvöld og ég sit hér á Holtsgötunni með Dóra sem reyndar er hálfdauður í rúminu mínu sökum þreytu og þynnku! Hann er ekki hress kallinn...
Ég veit ekki hvað hann á mikið eftir...hann getur ekki talað né hreyft hendurnar.
En nóg af því.
Þetta er búið að vera mikill þynnkudagur fyrir flesta.
Ég hélt að Axel myndi ekki verða eldri í morgun en kjötveisla frá Dominos reddaði honum og nú er hann byrjaður að drekka aftur. Djammið sefur aldrei hérna megin.
Fór með Dóra að leigja When a Stranger Calls og viti menn þá virkaði hún ekki, Axel mælti með því að sleikja diskinn og setja tannkrem á hann og þeim fyrirmælum var fylgt en þá komu bara einhver óhljóð sem hræddu mig og dóra mjög mikið þannig að það var ekki horft á neitt og nú er dóri sofnaður. 
Ég sit hér einn og hlusta á "Heartbeats" með Jose Gonzalez og hugsa til þess að það eru 4 dagir þangað til ég fer til Englands. Það verður of gaman! 
Jæja ég ætla að fara að vekja Dóra...lifið heil!

Leiter!

Sebastian.

Lag Dagsins: Better með Reginu Spektor
 
03. september 2006 klukkan 05:49
Sebastian Storgaard
6 athugasemdir
01september

TOEFL SMOEFL!

Hey allíúbba!
Jæja þá er þetta TOEFL próf búið og það var aaaaaðeins erfiðara en ég bjóst við. Lesni textinn var úr einhverjum líffræðibókum og fjallaði hann um hvernig maurar viðhalda hitastigi og súrefnismagni í maurabúinu. Dólk vissi almennt ekki hvað var í gangi???
Yfir allt saman var þetta bara ágætt og nú er bara að bíða í 3 vikur og sjá hver úrslitin eru...spennandi!
England eftir 5 daga og ég get ekki beðið. Pétur Oddbergur ætlar víst að vera með dólgslæti í flugvélinni og láta öllum illum látum til að gera mig vandræðalegan. Ég vona ekki!
Jæja hef ekki mikið að segja...ætla að fara að draga Krissa útað skokka og hrista spikið. Sjáumst síðar!

kv.Bassi

Lag Dagsins: Somwhere in Between með Lifehouse.


Skokkhópurinn Bumbubani á góðri stundu!
01. september 2006 klukkan 20:42
Sebastian Storgaard
2 athugasemdir
30ágúst

Hvað er í gangi?

Mig langar að byrja þessa færslu á að lýsa yfir óánægju mína með að reggíhljómsveitin Hjálmar séu hættir!!!
Án efa besta bandið á Íslandi í dag og lang skemmtilegasta tónleikabandið er hætt.
Ég gæti skrifað mjög væmna færslu um hversu gaman hefur verið á öllum tónleikunum þeirra og svo framvegis en þeir fengu mig allaveganna til þess að dansa einsog klikkhaus þegar ég var á hækjum.
Vona bara að þeir sjái sér fært að spila bráðum aftur, það vantar fleiri bönd einsog þá á Íslandi.
Annars er nóg að gerast þessa daganna.
Ég er að fara út til Englands eftir viku ásamt Pétri Oddbergi og síðan fylgir Byssan(Ingvar Örn Ákason) í kjölfarið...hér ein pæling?!? skyldi Byssan fá að fara í flugvélina...af því að hann er Byssan?(nei ok þessi var hræðilegur!)
Þetta verður án efa góð ferð þar sem við ætlum á Arsenal-Middlesboro á nýja Arsenal vellinum(Emirates Stadium) og þótt að ég sé Man United maður þá hafnar maður ekki þremur frímiðum með fríum bar í hálfleik!
Þetta verður algjör snilld...
Svo er víst fyrirhuguð ferð á Lion King söngleikinn á föstudeginum. Ég er eflaust einn minnsti söngleikjamaður í heimi en þetta gæti orðið fínasta sýning. Maður veit aldrei.
Annars var Laufey vinkona að komast inní tónlistarskóla í Utrecht í Hollandi og verður hún því þar næstu árin. TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!!!
Axel kemur heim á föstudaginn eftir 16 daga fjarveru frá Íslandi og það verður eitthvað húllumhæ í kringum það.
Svo var Friðrik félagi minn að gefa mér 2 frímiða í bíó á mynd sem ég man einfaldlega ekki hvað heitir...eitthvað beowulf...og ef einhver hefur áhuga að skella sér með þá endilega hafið samband!
TOEFL prófið mitt er á föstudaginn, það verður eflaust eitthvað gaman þar!
Ég hef ekki minnstu hvernig þetta próf er uppbyggt, ég veit bara að skólinn sem ég hef áhuga á vill fá 550 stig úr þessu prófi? Ég vona að það sé af allaveganna 1000 mögulegum? Ég veit ekki neitt...
Annars er þessi færsla orðin of löng og eflaust leiðigjörn og því segi ég bara lifið heil og sjáumst síðar!

Kv.Sebastian
30. ágúst 2006 klukkan 19:35
Sebastian Storgaard
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing